Persónuvernd

Stutt og mannamáls — engin lögfræði-orðaforði nema þar sem hún þarf að vera.

Hver ber ábyrgð

Helgi Bjarnason rekur mittgolf sem persónulegt áhugamál. Tengiliður vegna persónuverndar: mittgolf@helgib.is.

Hvaða gögn ég geymi

Þegar þú býrð til aðgang og tengist Golfbox geymi ég:

  • Netfang — til að þú getir skráð þig inn
  • Nafn — til að birta í viðmóti og til að stemma af framlag við skráningu
  • Golfbox notendanafn og lykilorð — lykilorðið er dulkóðað með Fernet áður en það er vistað. Ég get ekki lesið það beint úr gagnagrunninum
  • Hringirnir þínir úr Golfbox — skor, dagsetningar, vellir, holur. Sömu gögn og þú sérð sjálf/ur á golfbox.is
  • Tilvísun greiðslu (t.d. BB-7K2P) — til að para framlag við skráningu

Ég geymi ekki kennitölu. Greiðslur fara beint í banka og ég para þær með tilvísuninni úr skýringunni.

Hvar gögnin búa

  • Supabase (gagnagrunnur, innskráning) — innan ESB
  • Fly.io (bakendi) — Lundúnir (UK)
  • Vercel (frontendinn) — Bandaríkin, undir Standard Contractual Clauses

Hve lengi

Meðan aðgangurinn þinn er virkur. Ef þú eyðir aðganginum eyðist allt þitt — hringir, tengingin við Golfbox, allt — innan 30 daga.

Réttindi þín

Samkvæmt GDPR og Persónuverndarlögum nr. 90/2018 átt þú rétt á að:

  • Sjá öll gögn sem ég geymi um þig (sendu mér póst)
  • Sækja þau sem Excel-skrá hvenær sem er undir Tenging → Sækja gögnin mín
  • Leiðrétta rangar upplýsingar
  • Eyða aðgangi og gögnum
  • Kvarta til Persónuverndar (personuvernd.is) ef þú telur að ég sé ekki að standa mig

Sendu póst á mittgolf@helgib.is og þú færð svar innan viku.

Greiðsla og Krabbameinsfélagið Framför

Framlagið (1.000 kr) fer í gegnum minn reikning og rennur í heild sinni til Krabbameinsfélagsins Framfarar — félags karlmanna með krabbamein í blöðruhálsi og aðstandenda. Ég sé sjálfur engin kortagögn — bankamillifærslan gerist alfarið hjá þínum banka.

Vafrakökur

mittgolf notar bara þær vafrakökur sem þarf til að halda þér innskráðri/skráðum (Supabase Auth session). Engar mæliköku, engin auglýsinga-tracking.

Breytingar

Ef ég breyti þessari síðu sendi ég póst á alla skráða notendur og útskýri hverju breytti og af hverju.