mittgolf
Golf-tölfræði fyrir þá sem hafa gaman af tölum.
Af hverju?
Ég hef alltaf haft áhuga á tölum og tölfræði og skemmtilegast finnst mér að koma einhverju flóknu á skiljanlegt og áhugavert form. Frá því ég byrjaði í golfi (allt of seint!) hefur mig alltaf dreymt um að geta lesið í söguna — hvaða holur á ég eftir að para eða ná fugli, hvernig lítur draumahringurinn út á völlunum sem ég hef spilað og hvernig spilamennskan þróast yfir tíma. En aðgengi gagna var takmarkað og ég sá fljótt að það var meira en dagsverkefni að kópera úr Golfbox yfir í Excel til að leika sér með þetta.
Ég hef verið að vinna töluvert með Claude (gervigreindar-tólinu frá Anthropic) og mér datt í hug að prófa hvað við næðum langt með að smíða kerfi saman — kerfi sem sækir hringina mína sjálfvirkt úr Golfbox, geymir þá, og dregur upp þróun yfir tíma. Þetta tókst og ég hef verið að leika mér með þessi gögn og langaði að deila þessu.
En þetta er dálítið eins og þetta er, og svo ég segi það strax — ég er ekki að fara að viðhalda þessu og stækka. Þetta er eingöngu til gamans gert, og ef einhver hefur áhuga að prófa þá er það bara hið besta mál.
Hvernig virkar þetta?
Þú byrjar á að sækja um aðgang (sjá kaflann að neðan) og færð frá mér notendanafn og lykilorð. Þá geturðu skráð þig inn.
Undir Tenging tengir þú aðganginn þinn við Golfbox — setur inn Golfbox notendanafnið og lykilorðið. Lykilorðið er dulkóðað með Fernet áður en það er vistað, svo ég get ekki lesið það úr gagnagrunninum.
Síðan smellir þú á Sync. Í fyrsta skipti tekur þetta nokkrar mínútur þar sem allir hringir frá byrjun eru sóttir úr Golfbox. Eftir það koma bara nýir hringir inn og það gengur hratt.
Það sem ég geymi um þig: netfang (til innskráningar), nafn (til að stemma af framlag við skráningu), Golfbox notendanafn og dulkóðað lykilorð (svo hægt sé að sækja nýja hringi), og hringina þína úr Golfbox (skor, dagsetningar, vellir, holur — sömu gögn og þú sérð sjálf/ur á golfbox.is).
Ég geymi ekki upplýsingar eins og kennitölu eða álíka — eingöngu það sem talið er upp hér að ofan sem þarf til að appið virki.
Hvað er hægt að sjá
📈Yfirlit
Lítið mælaborð þar sem þú sérð helstu staðreyndir núverandi árs. Þú sérð síðasta hring sem þú spilaðir og hápunkta hringsins — náðir þú t.d. fugli á holu sem þú hafðir ekki gert áður? Á yfirlitssíðunni er síðan álíka samantekt á síðustu hringjunum þínum.
📅Þróun ára
Hugmyndin var að sjá hvort maður sé í alvöru að batna eða ekki! Skoðum söguna í forgjöf og meðalskori á par 3, 4 og 5, auk þess sem ég bjó til mynd yfir stöðugleikann og besta/versta hringinn.
🏌️Vellirnir
Hvernig gengur þér með einstaka völl og hvaða völl ertu búinn að spila mest? Hægt að finna alla hringi á hverjum velli og sjá skor og hápunkta hvers hrings. Ég hef sjálfur oft búið til smá keppni við mig — að ná tveimur stigum, eitt fyrir 18 punkta á fyrri níu og eitt fyrir 18 punkta á seinni níu. Hvenær fékk ég stigin og hvenær ekki?
🔥Holurnar
Þetta fannst mér áhugavert — hvaða holur eru mér bestar og hverjar eru mér verstar. Vissi reyndar að 15da á Grafarholtinu hefur farið illa með mig, en það stendur þarna svart á hvítu!
✨Draumahringurinn
Hvert er besta skor á hverri holu og hvernig liti draumahringurinn út? Hvaða holur áttu eftir að ná fugli eða pari á? Þetta fannst mér skemmtilegt að sjá.
🏅Milestone
Lék mér að því að búa til með Claude hin ýmsu persónulegu met og setja á einn stað. Lægsti brúttó, hæstu punktar, lægsta forgjöf, flestir fuglar í einum hring. Fyrsti hringur í gagnasafninu, fyrsti birdie, fyrsti eagle, fyrsti góði dagur (36+ pt). Hringja-mílusteinar: #50, #100, #250… Hvert kort linkar beint á hringinn sem það gerðist í.
Þú átt gögnin þín
Ef þig langar að sjá eitthvað meira: ekki senda póst á mig — hlaðaðu bara niður gögnunum og leiktu þér með þau. Þú átt þau.
Smáa letrið
Þetta er hobby. Ég ætla ekki að halda þessu úti sem alvöru þjónustu. Það getur farið niður, gögnin geta brenglast, og ef Golfbox breytir kerfinu sínu þá hættir sync kannski. Engin loforð. Ég laga ef ég get!
1.000 krónur til Framfarar
Ég vil ekki taka pening fyrir þetta enda ætla ég ekki að skuldbinda mig neitt er þetta varðar. Ég er samt á því að allt sem er frítt sé vanmetið og því ætla ég að gera það að skilyrði að sá sem vill nota þetta leggi inn á mig 1.000 krónur sem fer óskertur til Krabbameinsfélagsins Framfarar — félags karlmanna með krabbamein í blöðruhálsi og aðstandenda. Ef einhver fær bakþanka og vill hætta við, þá endurgreiði ég 1.000 krónurnar ef um það er beðið innan 3ja daga.